Spennandi fyrirtæki með mikla stækkunarmöguleika.
Lýsing
Yfir 5 ára reynsla af vörukynningum í verslunum og á viðburðum.
Fyrirtækið var stofnað árið 2019 og hefur reksturinn gengið mjög vel síðan, bókaðar eru vörukynningar út árið 2024. Höfum verið með vikulegar kynningar frá maí 2019 (fyrir utan lokanir í covid).
Markaðskynningar er fyrirtæki sem sérhæfir sig í kynningum á matvörum og drykkjarvörum ásamt hinum ýmsu vörum fyrir fyrirtæki bæði í verslunum og á viðburðum. Markaðskynningar eru í samstarfi við mikið af stærstu fyrirtækjum og heildsölum á landinu.
Fyrirtækið bíður uppá fyrsta flokks þjónustu og áhrifaríkar vörukynningar. Markaðskynningar sjá um allt vörukynningarferlið. Það eina sem viðskipavinurinn þarf að gera er að ákveða hvaða vörur á kynna og hvar kynningin á að vera haldin.
Vörukynningar í verslunum eru ein besta leiðin til að ná til nýrra viðskiptavina og skila kynningar mikilli aukningu í sölu. Miklir stækkunarmöguleikar í boði og góðar tekjur.
Inni í kaupunum er allur búnaður og lager af tækjum sem þarf til, vefsíða, tölvupóstur, viðskiptatengsl og er seljandi tilbúin að vera nýjum eiganda innan handar út 2024.
Ef áhugi er fyrir kaupum er hægt að fá tækjalista og frekari upplýsingar sendar í tölvupósti.
5.000.000 - 25.000.000
Þjónusta
2 - 4
15.4.2019
Ástæða fyrir sölu
Vegna anna á öðrum verkefnum er ég ekki að ná að sinna rekstrinum eins og þarf til að stækka hann frekar.