Maur.is
Lýsing
Markmið Maur.is er að tengja saman verktaka og fyrirtæki við þá sem þurfa á þjónustu þeirra að halda. Vefsíðan á að auðvelda líf bæði þeirra sem leita að verkefnum og þeirra sem leita að starfskrafti.
Ótal tækifæri felast í því að taka að sér verkefni í gegnum Maur.is. Fyrst ber að nefna endurgjafakerfið (stjörnugjöfina) sem gerir það að verkum að með hverju verkefni sem þú tekur að þér ert þú að byggja upp þinn prófíl og í kjölfarið setja vissan gæðastimpil á þína þjónustu. Að auki sjáum við um að auglýsa fyrir þig ef þess er óskað en þá getur þú einbeitt þér alfarið að starfssemi þinni og tekið að þér fleiri verkefni í stað þess að eyða óþarfa tíma og vinnu í eitthvað sem við erum snillingar í.
0 - 5.000.000
Markaðstorg
0 - 1
1.1.2020
Ástæða fyrir sölu
Vegna tímaskorts viljum við að Maur (www.maur.is) komist í hendur aðila sem er tilbúinn að veita verkefninu þann tíma sem það þarf.
Við höfum ekki náð að sinna þessu eins vel og ætlunin var og það væri gaman ef einhver gæti vakið Maurinn úr dvala.
Það eru miklir möguleikar og tækifæri sem fylgja þessari hugmynd.
Sendu tölvupóst á sindrimarf@hotmail.com ef þú hefur áhuga á að taka við verkefninu.