Attikk
Lýsing
Attikk er með verslun á Laugavegi 90 og vefverslunina attikk.is. Vefverslunin er sérhönnuð og tengd við sérhannað innra kerfi sem heldur fullkomnlega utan um reksturinn, þ.e. seljendur, kaupendur, vörur, vottanir, sölur, áskriftir ofl. Enginn hugbúnaður var til sem gat haldið um slíkan umboðssölurekstur og var hann því gerður frá grunni. Vefverslunin er bæði á íslensku og ensku en Attikk sendir út um allan heim. Félagið sjálft á fæstar þær vörur sem eru til sölu í Attikk en tekur þóknun fyrir að sinna milligöngu í sölum. Attikk er með eigin vörulínu. Umhirðuvörur fyrir merkjavörur.
Með rekstrinum fylgir allt, þ.á.m. hugbúnaður (verðmæti ca 20 m.kr) og skuld við eigendur (20 m.kr.).
100.000.000+
Verslun
2 - 4
1.1.2021
Ástæða fyrir sölu
Eigendur eru að hefja framhaldsnám í Háskóla Íslands og þurfa meira svigrúm til að starfa á þeim sviðum, m.a. lögfræði. Tímaleysi orsakar söluna.