Verðmat fyrirtækja: hvernig fyrirtæki eru metin og hvað eigandinn tekur í raun út

Hvernig verðmat fyrirtækja virkar, hvers vegna EBITDA segir hálfa söguna um lítil fyrirtæki og hvernig þú færð frítt verðmat á þínu.

Verðmat fyrirtækja: hvernig fyrirtæki eru metin og hvað eigandinn tekur í raun út

Þegar kemur að því að kaupa eða selja fyrirtæki er verðmat aðila á fyrirtækjum eða rekstrareiningum oft stærsta bitbeinið. Þó ótrúlegt sé er það líka oft þannig að verðmat og verðlagning smærri og meðalstórra fyrirtækja getur verið tímafrekari og flóknari smíð en fyrir stærri félög.

Fyrir stöndug rekstrarfélög, félög eða rekstrareiningar með mikla veltu er oft hægt að geta sér til um verðmæti með því að horfa á EBITDA, sjóðstreymi, tekjumargfaldara eða eignir mínus skuldir. En þegar kemur að minni rekstrareiningum vilja oft blandast inn hlutir sem eigandi minni fyrirtækja tekur inn í verðmat en eiga ekki við á stærri stöðum. Þannig blandast persónulegur kostnaður eigenda oftast inn í verðmatið eða annað sem yrði ekki hluti af samtalinu ef um stærra fyrirtæki væri að ræða.

Dæmi

Óli er með skiltagerð sem veltir 75 milljónum. Það eru 5 milljónir í EBITDA sem er 6,67% EBITDA-framlegð og iðnaður með margfaldara upp á 5 til 7x. Því ætti fyrirtækið lauslega að vera metið á 25 til 35 milljónir.

Óli eigandi er hins vegar framkvæmdastjóri félagsins og borgar sér 2 milljónir á mánuði eða um 24 milljónir á ári. Í ofanálag hefur hann aðgang að bíl í gegnum reksturinn og það er hluti af starfskjörum að reksturinn greiðir fyrir net og síma, árshátíðarferð erlendis og eflaust eitthvað fleira tilfallandi sem fylgir því að vera í eigin rekstri. Lauslega talið má því geta sér til um að litli reksturinn hans Óla skili honum í kringum 25 til 30 milljónum í vasann á ári og þá á eftir að taka tillit til afkomu úr rekstrinum, t.d. arðgreiðslna.

Eigendahagnaður

Því kann það að koma spánskt fyrir sjónir að kaupandi horfi á rekstur með 5 milljónir í EBITDA og verðmeti félagið á 25 milljónir á meðan það er það sem Óli tekur út úr rekstrinum árlega með því að vera lykilstarfsmaður og eigin herra.

Það er engin ein leið til að segja hvað er rétt hverju sinni en oft á tíðum vill það gleymast að í minni rekstrareiningum er þunn lína á milli heimilisbókhalds og rekstrarbókhalds. Þetta gerir söluna oft torveldari en ella. Erlendis þekkist til dæmis að í stað EBITDA-margfaldara sé horft á 2 til 3x eigendahagnað (e. seller’s discretionary earnings, SDE).

Hvernig fer verðmat fram?

Verðmat fyrirtækis er í grunninn svar við einni spurningu: hvað er einhver tilbúinn að borga fyrir framtíðartekjur þess? Þrjár aðferðir eru algengastar:

  • Margfaldari á hagnað. EBITDA eða hagnaður x einhver tala sem fer eftir atvinnugrein, oftast 2 til 5. Einfaldast og algengast fyrir lítil fyrirtæki.

  • Margfaldari á tekjur. Velta sinnum 0,5 til 2. Notað þegar hagnaðurinn er lítill eða óreglulegur, t.d. í smásölu og veitingarekstri.

  • Eignir mínus skuldir. Það sem félagið á, lager, tæki, fasteignir, að frádregnum skuldum. Gólfið í verðmatinu; fyrirtæki sem græðir ekki er sjaldan meira virði en eignirnar.

Fyrir stærri félög bætist við núvirt sjóðstreymi (DCF) þar sem framtíðartekjur eru reiknaðar til dagsins í dag. Það krefst spár um mörg ár fram í tímann og er sjaldan þess virði fyrir fyrirtæki undir 100 milljónum.

Hvaða aðferð sem er notuð skiptir mestu máli hvaða tölur fara inn í hana. Þess vegna snýst verðmat lítilla fyrirtækja fyrst og fremst um að finna rétta hagnaðinn eins og dæmið um Óla sýnir.

Frítt verðmat á þínu fyrirtæki

Ef þú vilt vita hvað þitt fyrirtæki gæti verið metið á eru þrjár leiðir:

  1. Reiknaðu sjálfur. Taktu EBITDA síðasta árs, bættu við launum og hlunnindum sem þú tekur út sem eigandi og margfaldaðu með 2 til 4. Þumalputtareglur eftir atvinnugreinum eru í sérstakri grein.

  2. Berðu saman. Á Kennitölunni sérðu hvað sambærileg fyrirtæki eru skráð á. Það er það sem markaðurinn segir, ekki formúla.

  3. Hafðu samband. Við skoðum ársreikninga og rekstur og gefum þér mat án kostnaðar og án skuldbindinga. Flestir sem spyrja eru ekki að selja strax, þeir vilja bara vita hvar þeir standa.

Okkar verðmat er lauslegt mat en ekki formleg úttekt. Ef þú þarft formlegt verðmat fyrir samninga eða banka þarf endurskoðanda eða verðmatsaðila og við getum bent þér á slíka.


Það má því segja að samtalið um hvernig kaupin gerast á eyrinni hjá þeim minni sé oft ekkert minna flókið en við kaup á stærri fyrirtækjum. Þumalputtareglur eftir atvinnugreinum eru í sérstakri grein og á Kennitalan.is geturðu séð hvernig sambærileg fyrirtæki eru verðlögð.