Þumalputtareglur í verðlagningu
Hvað kostar lítið fyrirtæki? Þekktir margfaldarar eftir atvinnugreinum, frá SaaS til veitingastaða, án töflureiknis.
Verðmatsfræðin eru oft eins og veðurspáin. Það eru margir fræðingar með margar formúlur og miklar pælingar en svo á endanum kemur oft allt önnur niðurstaða úr lofti en í töflureikni. Sjóðstreymisverðmat, EBITDA-margfaldari, tekjumargfaldari, eignir mínus skuldir og svo mætti lengi telja. Það eru til fjölmargar formúlur en samt tekst mönnum alltaf að deila um hvað sé hin eina rétta. Fyrir litlar til meðalstórar rekstrareiningar upp að 50 milljónum er oft farin fjallabaksleið við að finna út og reikna verðmætin og hér eru dæmi um nokkrar þumalputtareglur sem þekktar eru í mismunandi iðnaði.
Tæknilausnir
SaaS-fyrirtæki eins og Payday, Pardus og fleiri hér heima og erlendis eru oft metin á margfaldara við áskriftartekjur á ársgrundvelli (ARR). 3 til 10x er ekki óalgengt.
Smásala
Ein þekkt þumalputtaregla í smásölu er 1 til 2x árstekjur en fyrir verr rekin félög horfa mögulegir kaupendur oft í virði ákveðinna vörumerkja, umboða og stöðu lagers.
Veitingastaðir
Það dreymir nær alla um að stofna einhvern tíma á lífsleiðinni veitingastað en eins og við þekkjum úr tölfræðinni er talað um að um 9 af hverjum 10 fari á hausinn. Nokkrar leiðir eru þekktar þegar kemur að veitingastöðum:
0,5 til 1,5x árstekjur
3 til 5x EBITDA
1,5 til 3,5x eigendahagnaður (e. discretionary earnings)
Sjávarútvegur
Upplausnarvirði aflaheimilda. Óefnislegar heimildir eru oft á tíðum stærsta eign félaganna og því er beitt þeirri aðferð að reikna út rétta eignastöðu miðað við verð heimilda hverju sinni og draga frá skuldir.
Miðlun
Fjármálastarfsemi eða annars konar miðlunarstarfsemi er oft metin á 1 til 5x bókfært eigið fé.
Fasteignir
Fermetraverð á svæðinu eða í sömu tegund húsnæðis (íbúð, lager, atvinnuhúsnæði) eða leigumargfaldarar. Til dæmis er oft horft í 150x mánaðartekjur fyrir íbúðir en 120x mánaðartekjur fyrir atvinnurými.
Dæmi: Ef þú ert með 300.000 kr. í leigutekjur á mánuði er virði eignarinnar um 36 milljónir.
Vefverslun
Ef það er komin rekstrarsaga eða töluverð velta er eðlilegt að horfa á sjóðstreymisverðmat eða líta til þekktra margfaldara eins og á EBITDA. Fyrir minni félög með litla sögu og litla veltu eru það eignir (lager og önnur tæki) mínus skuldir.
Ef þú ert að hugsa um að kaupa eða selja og ert ekki viss hvar þinn rekstur stendur er þér frjálst að hafa samband og við reynum að aðstoða eftir fremsta megni. Einnig getum við tengt þig við fjölmarga sérfræðinga og fyrirtæki varðandi verðmat, pælingar um rekstur o.s.frv.
Höfundur er eigandi Kennitalan.is og með blæti fyrir verðmati, kaupum og sölu fyrirtækja.