Hvernig kaupir maður netverslun?
Leiðarvísir fyrir íslenska frumkvöðla sem vilja kaupa, ekki puða við að byrja frá grunni.
Verslun á netinu heldur áfram að vaxa ár frá ári. Dropp, Pósturinn, Górilla vöruhús og fleiri fyrirtæki hafa stuðlað að því að rekstur netverslana verður sífellt skilvirkari þar sem þú þarft ekki að eyða sama púðri í vöruhýsingu og dreifingu og þeir sem ætluðu sér að selja á netinu á árum áður.
Fyrir metnaðarfulla einstaklinga sem leita leiða til að hefja sjálfstæðan rekstur býður þessi þróun upp á ný tækifæri. En í stað þess að stofna fyrirtæki frá grunni, finna vörumerki erlendis og senda 100 tölvupósta á birgja víðsvegar um heiminn getur verið bæði skynsamlegt og hraðvirkara að kaupa netverslun sem er þegar í loftinu og fara svo í að bæta við nýju vöruúrvali.
Af hverju að kaupa í stað þess að stofna frá grunni?
Kaup á starfandi netverslun veita strax aðgang að:
Tekjustreymi: Viðskiptavinir eru þegar til staðar og pantanir sem koma inn eru að öllum líkindum tengdar við öll helstu kerfi, dreifingaraðila og netþjónustur svo þú sparar þér tíma við að setja allt saman upp sjálf/ur.
Ferlum: Þú erfir vöruframboð, vörumerki og viðskiptakerfi sem hafa verið prófuð og getur nýtt þér þá ferla sem eru fyrir hendi og betrumbætt eftir eigin höfði.
Viðskiptavinagrunni: Þú færð aðgang að gagnagrunni viðskiptavina sem treysta vörumerkinu. Í mörgum tilfellum liggja vefverslanir á tugum þúsunda netfanga fyrrum viðskiptavina án þess að hafa ákveðna stefnu um að senda út póst mánaðarlega, sem er ein ódýrasta og skilvirkasta markaðssetning sem þú getur farið í.
Birgjasamböndum: Þú sleppur við að leita að framleiðendum og semja frá grunni heldur gengur inn í samninga við birgja sem oft á tíðum eru tregir til að skipta um söluaðila ef vel gengur og öll lán eða greiðslur eru í skilum.
Styttri námsferli: Þú getur byggt þekkingu þína á því sem seljandi hefur þegar lært og ert strax með yfirsýn yfir ákveðna vöruflokka, stærðir eða annað sem hefur áhrif á næstu pantanir af birgðum.
Hvaða tegundir netverslana getur maður keypt?
Dropshipping: Fyrirtækið heldur ekki birgðir heldur pantar beint frá birgja. Þetta er ekki jafn algengt hér á landi og erlendis en þó eru dæmi um aðila sem hafa verið með samninga gegnum Alibaba, AliExpress eða Shopify-viðbætur, þar sem þú selur vöruna gegnum netið og þau senda af lager í Kína eða annars staðar frá um leið og greiðslan er farin í gegn.
Private label: Vörur framleiddar af þriðja aðila en seldar undir þínu eigin vörumerki. Þetta er algengara en þú heldur. Stór hluti af íslenskum vörum eins og dýnum, rúmum, jakkafötum eða öðrum klæðnaði ber framandi íslenskt nafn en er svo nákvæmlega sama vara og einhver önnur, framleidd í sömu verksmiðju og annað private label í öðru landi.
Heildsala: Vörur keyptar frá heildsölum og endurseldar á netinu. Einhver dæmi eru um að frumkvöðlar hafi keypt vörur af heildsölum sem ekki selja á netinu og komið þeim í stafrænt form.
Stakar sölusíður fyrir vörumerki: Algengasta form vefsölu, þar sem einhver hefur sett upp sölusíðu undir vörumerki og selur bara á netinu.
Hver tegund hefur sína kosti og galla og verðmatið endurspeglar áhættustigið og fjárfestingaþörfina.
Hvar finnur maður netverslun til sölu?
Kennitalan.is: Okkar eigin vettvangur er orðinn sá stærsti hér á landi til að kaupa og selja fyrirtæki og þar er mikið úrval af vefverslunum til sölu, m.a. barnafataverslanir, varahlutir í bíla, snyrtivörur, heilsuvörur o.s.frv.
Flippa.com: Opinn markaður með mikinn fjölda smærri fyrirtækja. Enginn fókus á Íslandi en oft hægt að fá góðar hugmyndir um hvað virkar í öðrum löndum og mögulega hægt að útfæra hér.
Empire Flippers: Vandaðri síða með ítarlegri kröfum og hærri verðmiðum en t.d. Flippa.
BizBuySell: Stærri fyrirtæki og stundum með samhliða staðbundinni starfsemi.
Bein nálgun: Hafa samband við eigendur sem eru ekki formlega að selja.
Hvernig metur maður gæði og verðmæti netverslunar?
Fjárhagsleg frammistaða: Skoðaðu tekjur, kostnað, arðsemi og vöxt yfir a.m.k. 12 mánuði.
Umferð á vefnum: Hvaðan kemur hún? Er hún lífræn (organic), greidd, frá samfélagsmiðlum eða blanda?
Vörulisti: Fjöldi vörunúmera (SKU), best seldu vörur, tímabil, líftími og birgjasambönd.
Rekstrarferli: Pöntunarferli, þjónusta, markaðssetning, birgðahald og bókhald.
Markaðsstaða: Samkeppni, vörumerkjavirði, verðlag og endurkaupatíðni viðskiptavina.
Algengar aðferðir við verðmat
Margföldun hagnaðar (SDE): Flest fyrirtæki seljast á 2 til 4 sinnum árshagnaði.
Eignagreining: Birgðir, hugverk, vefsíða, listi viðskiptavina. Hér eru birgðir taldar á kostnaðarverði (t.d. 10 milljónir) og skuldir við eigendur oft dregnar frá (5 milljónir), þannig að kaupverðið er þá 5 milljónir.
Markaðssamanburður: Hvað hafa sambærileg fyrirtæki verið að seljast á? Keldan liggur á lager af upplýsingum um verð og verðmat seldra fyrirtækja á Íslandi.
DCF (núvirt sjóðstreymi): Notað við stærri eða vandaðri kaup.
Áreiðanleikakönnun (due diligence)
Fjárhagsgögn: Bankayfirlit, skattskýrslur, bókhald, greiðslumiðlar.
Lögfræðilegt: Skjöl, samningar, vörumerki, höfundaréttur, samningar við birgja.
Rekstur: Hugbúnaður, pöntunarferli, þjónustukerfi, SEO-gögn, markaðssetning.
Viðskiptavinir: Tíðni endurkaupa, gagnasöfn, viðhorf og umfjöllun á netinu.
Mistök sem kaupendur gera oft
Of lítil áreiðanleikakönnun.
Ofmat á eigin getu til að bæta reksturinn.
Vanmat á áhættu vegna einsleitrar umferðar.
Vantar aðgerðaáætlun eftir kaup.
Eyða öllu lausafé í kaupin, ekkert eftir fyrir markaðssetningu eða birgðir.
Eitt að lokum
Kaup á netverslun geta verið fljótvirk og snjöll leið til að hefja rekstur eða fjárfesta. Með vandaðri greiningu, þolinmæði og skýrri aðgerðaáætlun er hægt að finna fyrirtæki sem skilar tekjum strax og býður upp á raunhæfan vaxtargrundvöll.