Ekki henda hugmyndum
Hugmyndin sem þú gafst upp á gæti verið nákvæmlega það sem einhver annar vantar. Vefsíða, lén, vörumerki, hálfbyggður vefur: áður en þú hendir því til hliðar athugaðu hvort einhver vill kaupa.
Forritarar, frumkvöðlar og fleiri atorkusamir hugvitsmenn fara oft af stað með litlar hugmyndir og láta þær verða að veruleika. Hæfileikinn til að skapa býr í okkur öllum og draumsýnin ber hugmyndirnar oft lengra en þær komast í hinum stóra heimi. Hver þekkir ekki að sjá fyrir sér hvernig „besta hugmynd í heimi“ sem maður fær í útlöndum eða annars staðar verði skyndilega orðin að rekstri sem skilar manni 100 milljónum á ári. Hoppukastalinn á ströndinni á Tenerife sem sárvantar í Hamraborgina.
Svo þegar kemur að því að framkvæma hugmyndina falla plönin oft um sjálf sig. Markaðurinn fyrir hugmyndina var minni en maður hafði gert ráð fyrir og lítil þekking á markaðssetningu olli því að enginn vissi af þessu. Engin leyfi frá Kópavogsbæ og svo mætti lengi telja.
Hvatvísi frumkvöðullinn er kominn með aðra og betri „bestu hugmynd í heimi“. Því er oft tekið það ráð að henda bara hinu í ruslið og halda áfram. Sem hvatvís, atorkusamur hugvitsmaður þekki ég þetta vel. Taka mistökin á kassann, læra af þeim og vaða í næsta verk. En reynslan hefur líka kennt okkur að eins manns hugmynd getur orðið annars manns brask. Því hvetjum við alla til að hugsa út í það að sama hvað þú telur að það sem þú hefur sé verðlaust í þínum höndum þá gæti hugmyndin átt sér annað líf í augum annarra.
Hvað er hægt að selja?
Meira en fólk heldur. Lén sem þú keyptir fyrir verkefnið. Vörumerki og hönnun. Hálfbyggður hugbúnaður eða vefur. Instagram-reikningur með nokkur þúsund fylgjendum. Netfangalisti. Frumgerð sem virkar nokkurn veginn. Samningur við birgja sem þú náðir en nýttir aldrei.
Kaupandinn er sjaldnast að kaupa drauminn. Hann er að kaupa tímann sem þú eyddir: vikurnar eða mánuðina sem fóru í að setja upp síðuna, búa til logoið, finna birgjann, safna fylgjendum. Fyrir einhvern sem er með rekstur í gangi og vantar nákvæmlega þetta er það ódýrara að kaupa af þér en að byrja frá grunni.
Skráningin tekur tíu mínútur. Lýstu því sem er til, hvað það kostaði þig og hvað þú vilt fyrir það. Settu lágt verð frekar en ekkert. Það er betra að fá 150 þúsund fyrir eitthvað sem annars lægi í skúffu en að fá ekki neitt.
Því brýnum við fyrir öllum frumkvöðlum: ekki henda vinnunni. Reyndu allavega fyrst að selja hana á Kennitalan.is.