Að selja sjálfur eða fá aðstoð
Það er þekkt vandamál þegar kemur að því að kaupa eða selja rekstur hvort maður eigi að leita sér aðstoðar eða stinga höfðinu á undan sér og hlaupa af stað sjálfur.
Það er þekkt vandamál þegar kemur að því að kaupa eða selja rekstur hvort maður eigi að leita sér aðstoðar eða stinga höfðinu á undan sér og hlaupa af stað sjálfur. Í þessum pistli er farið yfir helstu skrefin við að selja fyrirtæki, hvað beri að hafa í huga og hvar sé best að gæta að eigin hagsmunum og fá sérfræðinga til að vera sér innan handar.
Upplýsingar um fyrirtækið
Fyrsta skrefið er að taka saman helstu upplýsingar um það sem er verið að selja: starfsemi, aldur, sögu fyrirtækisins og hverjir eru eigendur. Því næst skal taka saman fjárhagsupplýsingar sem draga saman helstu myndina af því hvernig rekstur fyrirtækisins gengur, söguleg gögn og smá upplýsingar um hvað framtíðin ber í skauti sér (tækifæri til vaxtar, hagræðingar o.s.frv.). Öllu jafna eru þetta upplýsingar sem eigendur eða lykilstarfsmenn geta tekið sjálfir saman en þó er oft mælt með að fá utanaðkomandi aðila til að yfirfara gögn og aðstoða við að gera kynningu.
Verðmat
Verðmat fyrirtækja er flókin fræði, eins og farið hefur verið yfir í öðrum pistlum á síðunni, og því mælum við helst með því að hér sé vel gætt að því hvernig staðið er að hlutunum. Einn lykilkostur þess að sækja utanaðkomandi aðstoð við verðmat er trúverðugleiki og traust gagnvart mögulegum kaupendum. Ef hægt er að vísa í að verðmatið eða verðlagningin sé að frumkvæði þriðja aðila er auðveldara að treysta því að það sé unnið af heilindum.
Samningstímabil
Það er í eðli flestra að hugsa sér að þetta taki enga stund. Menn lesi lýsingu, sjái verð, geri tilboð og kviss bamm búmm. Staðan er hins vegar allt önnur. Fjöldi spurninga getur flogið á milli aðila, fundir geta tafist um viku eða vikur og mikill fjöldi funda skilar á endanum engu. Gróflega áætlað má reikna með að kaup og sala á fyrirtækjum taki að minnsta kosti 3 mánuði þó að bara sé um litlar rekstrareiningar að ræða. Hér getur því oft verið mikill kostur að úthýsa vinnu til fyrirtækjasala eða miðlara sem sinna samskiptum, taka fundi og miðla svo upplýsingum manna á milli.
Kaupsamningsgerð
Þegar menn hafa náð saman um kaup og kjör munnlega er oft næsta skref að gera kauptilboð eða kaupsamning. Undirritaðir mæla hiklaust með að lögfræðingur sé báðum aðilum innan handar enda geta oft leynst ótrúlegir djöflar í smáa letrinu í kaupsamningi. Kaupsamningsgerðin er öllu jafna ekki tímafrekur partur en getur skipt sköpum upp á lokaverðmæti, ákvæði og annað sem raungerist síðar.
Áreiðanleikakönnun
Einn óvæntasti fylgihlutur kaupa og sölu er áreiðanleikakönnun sem iðulega fer fram sem fyrirvari í kauptilboði. Í slíku ferli er óskað eftir að seljandi láti af hendi öll skattaleg fylgigögn og gögn úr bókhaldi fyrir endurskoðanda kaupanda til að rýna. Þetta tekur um 2 til 4 vikur en getur tekið lengri tíma ef illa gengur að fá öll gögn send.
Afhending
Afhending á einingum eða ævirekstri getur verið sérstakur tímapunktur sem þó felur í sér tímabil þar sem seljandi er til taks til að svara spurningum eða vera kaupanda innan handar við yfirtöku á rekstrinum. Yfirleitt er samið um tímabil, fjölda tíma eða annað sem seljandi er til taks.
Með því að nota Kennitalan.is ertu með öll tólin til að selja sjálfur. Við mælum þó með því að þó þú ætlir að selja sjálfur, gera kynningu o.s.frv., sé alltaf sótt í aðstoð sérfræðinga eftir þörfum, til að mynda við verðmat eða kaupsamningsgerð.